8.31.2006

Afmælisstubbur

 
Elmar Dagur er tveggja ára í dag ! Posted by Picasa

8.28.2006

Myndavélin sem brann

 
Náði nokkrum myndum úr vélinni minni. Þarna eru hinar glæsilegu tjaldbúðir að rísa á umferðareyjunni neðan við Smáraveginn. Ef vel er skoðað má sjá tjaldmiðann ,, DALVÍK 2006 ´´sem Daði útbjó. Mæli með tónleikaferðum í tjaldvagni. Posted by Picasa

8.08.2006

Ein með öllu - nema sól

Á sunnudaginn fórum við fjölskyldan í bíltúr upp í Laugarfell í blautu sólskini. Gáfum veðrinu langt nef, fórum í laugina og gerðum gott úr degi, sem nánast örugglega hefði að öðrum kosti farið í að velta því fyrir sér hvað maður ætti helst að gera. Gott hjá okkur
 
upp upp upp, upp á fjallsins brún Posted by Picasa

 
Það er hefðbundið að draga fram allt sem til er og bæta sér í munni þegar í skála er komið Posted by Picasa

 
Hvernig er það, er farið að slydda ? Frú Báru órótt yfir veðrinu Posted by Picasa

 
Sumum fannst á sig leggjandi að fanga töfra landsins Posted by Picasa

 
Aðrir létu sér fátt um finnast Posted by Picasa

 
Það er víst alveg óskaplega fallegt hérna ! Posted by Picasa

8.01.2006

Á Bahamas

 
Þarna erum við feðgar á leiðinni heim af ströndinni í 38 stiga hita. Steinar Logi kælir sig í sundlauginni.
Ferðin til USA og Bahamas var snilld frá upphafi til enda og ætla ég ekkert að fara að rekja söguna mjög náið. Við fórum í Disneyland, sem er STÓRT, heimsóttum Universal studios, lágum í sólbaði, borðuðum hamborgara, ferðuðumst í limmu, fórum á Jetski, kysstum höfrunga og höfðum það gott saman fjölskyldan. Á Bahamas var haldin keppni í flugnabiti og hafði Kristján Davíðs vinninginn í fjölda, en ég vann bestu (verstu) staðsetniguna en hennar verður ekki getið hér þar sem þetta er alla jafna fjölskylduvæn síða.
Nú er bara að leggjast undir feld og finna út hvað á að gera næst og byrja að leggja til hliðar aura. Posted by Picasa