Á Bahamas
Þarna erum við feðgar á leiðinni heim af ströndinni í 38 stiga hita. Steinar Logi kælir sig í sundlauginni.
Ferðin til USA og Bahamas var snilld frá upphafi til enda og ætla ég ekkert að fara að rekja söguna mjög náið. Við fórum í Disneyland, sem er STÓRT, heimsóttum Universal studios, lágum í sólbaði, borðuðum hamborgara, ferðuðumst í limmu, fórum á Jetski, kysstum höfrunga og höfðum það gott saman fjölskyldan. Á Bahamas var haldin keppni í flugnabiti og hafði Kristján Davíðs vinninginn í fjölda, en ég vann bestu (verstu) staðsetniguna en hennar verður ekki getið hér þar sem þetta er alla jafna fjölskylduvæn síða.
Nú er bara að leggjast undir feld og finna út hvað á að gera næst og byrja að leggja til hliðar aura.

5 Comments:
Ég er alveg að skilja þig. Hef einnig strax hafið sparnað til ferðalaga en vegna mikillar þenslu í þjóðfélaginu sé ég ekki fram á að komast legra en til Egilsstaða á næta sumri. Þú verður að kenna mér að tjalda og ég skal kenna þér að rata í staðinn...
Tengdaforeldrar mínir keyptu sér sturtu frá Kína fyrir um tveimur árum síðan. Þetta er mikið verkfæri, með kerlaug, nuddi, gufubaði útvarpi, rómantískri lýsingu og kom heim til þeirra ósamansett. Eftir að hafa dreift glerveggjum, skrúfum, sturtuhausum, slöngum og leiðslum um íbúðina fórum við Kristján að gera okkur líklega til að raða herlegheitunum saman. Einu leiðbeiningarnar sem við fundum voru einhvernvegin svona í lauslegri þýðingu.
1. Takið varlega úr umbúðum
2. setjið saman
3. tengið
4. farið í sturtu.
Með sömu vönduðu vinnubrögðunum kemur hér kennslustund í tjöldun.
1. Kaupið tjald
2. Takið úr umbúðum
3. setjið upp tjaldið
4. Njótið
Þess má kannski geta að okkur Kristjáni tókst að setja sturtuna rétt saman í fyrstu tilraun...
En er óhætt að hafa primus inní tjaldinu? Hvað eiga tjaldhælarnir að halda bandinu mikið strekktu? En ef það eru engir tjaldhælar? Hvað er málið með það? Hvar er best að tjalda? Á að færa tjaldið ef maður er búinn að vera lengi á sama stað? Hvað á maður að gera ef tjaldið lekur og það er rigning? Hvernig kemur maður í veg fyrir þessa vondu tjalda-myglu lykt? Hvernig veit maður að kallinn sem er að rukka tjaldstæðin er í raun að vinna á tjadstæðinu? Hvað á maður að gera ef maður finnur ekki tjaldið sitt og man ekki hvernig það lítur út og hvað maður tók með sér og hvaða fólki maður kom með og hvað maður ætlar að vera lengi? Hvað er Tjaldur? Þarf maður svoleiðis?
En er óhætt að hafa primus inní tjaldinu?
Já svo lengi sem þú hefur ekki kveikt á honum !
Hvað eiga tjaldhælarnir að halda bandinu mikið strekktu?
u.þ.b. í a# miðað við 1.75 m. langt band .75 cm svert frá Hampiðjunni
En ef það eru engir tjaldhælar?
Hvað er málið með það?
þá hefur reynst vel í gegnum tíðina að troða tjaldinu milli tveggja tjalda og samnýta hæla með nýju nágrönnunum.
Hvar er best að tjalda?
Á því sem næst láréttum fleti heldur stærri an ummál tjaldsins með aðgengi að vatni og salernum
Á að færa tjaldið ef maður er búinn að vera lengi á sama stað?
já, einnig neð tilliti til nágranna ef einhverjir eru. Mér hefur þótt hæfilegt að vera ekki mikið meira en þrjár nætur í sama hreppi á tjaldferðalögum
Hvað á maður að gera ef tjaldið lekur og það er rigning?
færa sig útfyrir og njóta hins fljótandi íslenska sólkskins
Hvernig kemur maður í veg fyrir þessa vondu tjalda-myglu lykt?
með aðgangi að vatni og salernum
Hvernig veit maður að kallinn sem er að rukka tjaldstæðin er í raun að vinna á tjadstæðinu?
ef hann mótmælir ekkert þegar þú segist hafa borgað ,, hinum verðinum ´´ er hann að plata
Hvað á maður að gera ef maður finnur ekki tjaldið sitt og man ekki hvernig það lítur út og hvað maður tók með sér og hvaða fólki maður kom með og hvað maður ætlar að vera lengi?
fara inn á icelandair.is og bóka sér far til Köben
Hvað er Tjaldur?
Tjaldur er þýskur umhverfissinni og grænmetisæta sem dvelur öllum stundum á tjaldsvæðum fjarri heimaslóðum því honum finnst svo æðislega spennandi að hitta nýtt fólk. Tjaldur er ekki friðaður !
Þarf maður svoleiðis?
NEI
HAHAHAHAHA..!! Snilld!! ég ætla samt að vera á hóteli sko!
Post a Comment
<< Home