Á síðu Akureyrarbæjar má lesa ýmssan fróðleik um hin nýja Kjalveg. Meira að segja það að umferðarslysum muni fækka um 24 á ári. ( hvernig komast menn að svona þvættingi, hámenntaðir) eins er það dásamað hvað vegurinn muni opna reykjarvíkursvæðið fyrir norður - og austurlenskum ,,útflutningi". Kannski er það bara misskilningur hjá mér en yfirleitt hefur það verið þannig að ef opnað er á milli tveggja misstórra markaðssvæða hefur það stærra tilhneigingu til þess að gleypa það minna.
Ekkert er síðan talað um eignarhaldið á landinu, eða þa staðreynd að í stað þess að keyra á fjallvegi u.þ.b. 30 % leiðarinnar Akureyri-Reykjavík er maður u.þ.b. 70% á fjallvegi ( mínar eigin tölur og ekki byggðar á mælingum, mæli þetta seinna í vinnunni) og vegalengdir viðbragðsaðila ef eitthvað kemur uppá. Við fyrsja yfilestur virðist þessi nýja úttekt ekki bæta neinu við fyrri umræðu öðru en að ýta undir málflutning norðanvegsmanna. Þarf að skoða þetta betur