2.24.2006

Við hvað ert þú hræddur ?

Þar kom að því. Nú þarf ég að fara að skilgreina óttann í lífi mínu. Það er að segja lífsóttann, ekki það hvort ég er hræddur við köngulær eða snjóflóð heldur óttann sem heldur aftur af þroskaferli mínu sem manneskju. Þetta er ekki lítið verk og tekur vafalítið langan tíma. Ég er ekki einu sinni viss um það hvernig maður nálgast svona hluti en ég veit þó svo mikið að ég þarf ekki að óttast útkomuna.

2.21.2006

Tónleikar

Ég bætti hljóðmanni í CVið mitt um helgina. Beggi bróðir og Karl Henry úr Tenderfoot voru með tónleika á Græna Hattinum og sánduðu líka svona svaðalega. Enda ekkert skrítið þar sem ég er smekkmaður frekar en nokkuð annað

Til hamingju Ísland

með sjónvarpsþáttinn Kompás sem stakk á slæmu kýli síðasta sunnudag. Einhvernvegin langra mann altaf til þess að teknar verði upp harðar og virkilega ógeðfeldar líkamlegar refsingar þegar barnaníðingar eru annars vegar. Að sjálfsögðu á að gefa lögreglunni grænt ljós á að nota tálbeitur í að veiða þessa menn. Myndir af þeim eiga síðan að birtast á sjónvarpsskjánum í stað stillimyndar.

2.16.2006

Staðfesta

Ég hef átt erfitt með að blogga upp á síðkastið. Þegar maður missir niður dampinn er erfitt að komast á flug aftur. Eftir því sem lengra líður á milli innskota finnst manni eins og eitthvað mekilegt þurfi að koma fram í hverri færslu og einhvernveginn nær ekkert ólympíulágmarkinu.
Ég hef til dæmis alveg sleppt því að blogga um þorrablót, helvítis sjálfstæðismennina, kvennmannsbelginn sem vogaði sér að hringja heim og óska eftir þátttöku minni í prófkjöri framsóknarfloksins, Eurovision, nýja kaffið í vinnunni og bílinn sem ég var að kaupa. Allt fullkomlega þess vert að komast á síður þessa rafræna snýtipappírs. Kannski maður taki sig á.

2.08.2006

Hvirfilvindur

Skrapp suður í gær í fundarherferð. Kom ekki miklu í verk öðru en að skoða bíla og heimsækja Tryggva og dætur. Skoðaði reyndar nýju Blómavalsbúðina. Þar eru skrítin öfl að verki. Ekki skil ég hvernig reysa má svona glerhöll undir kerti og dollur. Ég fann ekki einn nýtilegan hlut þarna inni, enda ekki mikill dollumaður og með raflýsingu heimavið. jú kannski sevéttur´( sem voru til í þúsundum afbrigða)
Síðasta fundinum var slitið rúmlega tíu og síðan beint á hótelið, í sturtu og upp í rúm. Ég held að ég hafi aldrei gist einn á hóteli án þess að sofna út frá sjónvarpinu. Á því varð engin undantekning. Vaknaði síðan um hálf sex við tónlist og gat ekki sofnað aftur. Flaug norður 7:45 og beint í vinnuna. Núna er ég syfjaður og ekki frá því að ég sé að fá kvef. Ekki svo að skilja að maður fái kvef á því að fara til Reykjavíkur, eða sofna út frá sjónvarpi. Ég hef frekar trú á því að hundurinn liggi grafinn í hitamuni síðustu daga, sem er um 15 gráður á celsiusskalanum.

2.06.2006

Bömmer

Ég er í ótrúlegri fýlu við Bono. Þessi mannskratti, sem er ein af uppeldihetjum mínum í tónlist, hefur látið narra sig út í það að myrða hið stórkostlega lag Peter Gabriel ,, don´t give up". Ég veit ekki hver hefur átt hönk upp í bakið á honum en hann er að þjösnast á þessum dýrgrip í útvarpinu dag eftir dag ásamt einhverri af þessum bikiniklæddu smástelpum sem helst komast til metorða í tónlistarheimi samtímans. Skammastu þín Bono.