2.25.2007

Dónalegt er orð dagsins

Hin ástsæla hljómsveit Tvö dónaleg haust mun koma saman í vikunni og leika nokkra af sínum lífseigustu slögurum. Viðurður þessi er í beinu framhaldi af gríðarlega vel heppnuðu karlakvöldi sveitarinnar og ekki loku fyrir það skotið að sveitin haldi hljómleika/ball aður en árið er úti. Þess er þó ekki að vænta að sveitin taki aftur til starfa, heldur er aðeins um að ræða viðhald hinnar gríðarlega gefandi vináttu meðlima.
Við þetta má síðan bæta að það er gott að búa á Akureyri, þó hér verði menn að greiða virðisaukaskatt af tráplöntum.

2.22.2007

Lo xxx ins myndir

Súrmjólk í hádeginu/ Lunch
Súrmjólk í hádeginu/ Lunch,
originally uploaded by Stebbi Gunn.
Ég gat lo xxx (í tilefni af komandi ráðstefnu) ins komist inn á myndasíðuna mína og er hú nú komin inn undir hlekkin ,,myndir " hér til hliðar. Geta lesendur síðunar því vænst blóma í haga og hrossakjöts í maga.

2.21.2007

2-1 fyrir Liverpool

... og ég geng sáttur til náða.
Ég er náttúrulega ekkert búinn að blogga um X factor hneikslið, enda á maður ekki orð yfir golunni í höfðinu á þessari konu að senda Sigga heim, alls óverðskuldað. Það jákvæða í því máli er að nú getur maður hætt að horfa á þættina. Áfram, Siggi !! Annað sem ég hef ekkert bloggað um er gay pride, nei ég meina júróvisjon, en það er af eðlilegum orsökum. Áfram Eiríkur !!
Svo fannst mér við líka standa okkur vel á HM. Áfram Ísland!!

Langur dagur

Sunday all over
Sunday all over,
originally uploaded by Stebbi Gunn.
Ég er búinn að vera á vaktinni síðan kl 07:30 í morgun. Það er svosem ekkert slæmt. Verra er að Liverpool er komið 0 - 1 undir og líkurnar núna er á að við förum enn dýpra í drullupollinn ef ekkert verður að gert. Maður huggar sig bara við myndir að heiman

Það hebbði ég nú talið

Stefán nafni minn Eiríksson á í mestu vandræðum með að finna einhverja leið til þess að úthýsa klámhundunum frá Íslandi. Það ætti nú ekki að vera ofverkið hans að hringja í forvera sína og fá lánuð rökin sem notuð voru gegn Falun Gong á sínum tíma.
Annars er það helst að í hádeginu bauð Múlakaffi upp á indverskan nautapottrétt. Ég vissi ekki að Indverjar væru farnir að borða nautakjöt...

2.02.2007

Ja hérna

Var að enda við að horfa á Sigga vin minn rúlla upp X factor. Enda ekki við öðru að búast, hann söng svo listavel til hennar Rannvá sinnar. Voða voða sætt. Hér fyrir norðan er hins vegar stíf suðvestanátt í takt við nýjustu tísku. Nú er alldrei hvasst lengur heldur eru vindáttir stífar, þrátt fyrir alsherjarheilsuátak íslensku þjóðarinnar. Siggi Stormur hefur það á sínum breiðu herðum að hafa komið mönnum upp á þennan soramunnsöfnuð.
Hvað er svo helst. Tengdapabba mínum sveið það svo sárt að ég væri í fríi að hann stakk upp á að ég lagaði hellulögn í smíðaskála Verkmenntaskólans og ekki nema sjálfsagt að verða við því. Ég er líka að husa um að klippa eina þrjá fjóra garða núna þar sem nánast er sumarveður.
Morgundagurinn hefst á hljómsveitaræfingu hjá Steinari Loga og félögum í Kvöldið rokkar og síðan er væntanlega kikrjuskóli, grautur og sjónvarpsgláp rétt á meðan við keppum við Spán. 'Eg gæti trúað að téð hellulögn fari fram seinnipartinn. Á sunnudaginn erum við við síðan að vona að verði bjart og fagurt. gangi það eftir er meiningin að heimsækja heimilisfólk í Neslöndum.
Lag morgundagsins verður án efa ,, Boten Ana" eða eitthvað í þá áttina með Basshunter.