Bónusbrauð
Ég fór að hugsa um það í gær hvað það er einkennilegt að það fyrsta sem manni er boðið uppá, þegar gengið er inn í Bónus á Akureyri, er brauð. Af hverju er það einkennilegt ? jú það er sérdeilis ólógískt að setja brauðið fyrst í innkaupakörfuna. Það kallar annað hvort á það að umstafla þurfi í körfunni í hvert skipti sem eitthvað er dregið búið, eða láta brauðið fara í klessu. Í guðanna bænum farið nú ekki að koma með einhverjar athugasemdir um að hægt sé að fara til baka og taka brauðið síðast. Hefur fólk reynt að synda gegn straumnum í Bónus og olnboga sig framhjá fólkinu sem virðist álíta að verslanir séu félagsmiðstöðvar og innkaupakerrur einhverslags hækjur til að hanga á ? Ég gerði stutta athugun í Bónus í gær og sá að allflestir voru sömu gerðar og ég og höfðu af miskunarleysi látið brauðinu eftir að mæta örlögum sínum, neðst í innkaupakerrunni.

3 Comments:
En ef brauðið væri það síðasta sem þú myndir setja í körfuna væri það fyrst til að fara ofan í innkaupapokann og þá er brauðið komið í sömu kremjandi aðstæður.
Verður bara að skipta yfir í hrökkbrauð.
Ég hélt að bassaleikarar borðuðu bara villisvínakjöt.
Einnig vil ég spyrja: Ef maður setur brauðið efst, hvar á maður þá að setja Kinder eggin?
Post a Comment
<< Home