allt fram streymir
Já og lífið flýgur hjá. Skólagangan fer vel af stað á þessum bæ og rútínan að byrja að setjast á heimilislífið. Einna helst að ég sé ekki í rútínu, enda vaktavinna til þess garð að brjóta mann úr slíku. Ég hef svolítið verið að vasfstrast í haustverkum innan um tré og runna og liftir það sálarlíifinu upp fyrir endalausar fréttir af ofurlaunum., Grímseyjarferjunni, 100 daga ónýtri ríkisstjórn og gengdarlausum yfirgangi orkufyrirtæjanna. Skora á lesendur að fylgjast með málum í Gjástykki þar sem hamslaus frekja Landsvirkjunar kristallast í spellvirjum. Hér á Akureyri eru menn helst á því að rífa gömul hús og grafa upp íþróttavelli á meðan tillögur um verndun hins gamla hljóta verðlaun víðast annarstaðar. Jú og svo erum við víst búin að stinga Írak í bakið með því að kalla heim friðargæsluliðann sem þar var við störf. Vont er nú að vita til þess að ástandið þar yrði óstöðugt. o, svei því öllu. Stundum er gott að djöflast bara með spaða og hrífu í moldinni og finna lyktina af haustinu, sem kemur þrátt fyrir stór orð og úlfúð. Lífið er nefninlega gott ef maður hefur vit á að lifa því.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home