Á ferð og flugi
Fjúkk maður. Það er búið að vera spann á manni þessa síðustu daga. en nú hillir undir nýjar lendur og letitíma.
jamm þá er stundin runnin upp og allt orðið klárt fyrir Færeyjaferðina okkar Kristjáns. Brottför úr Múlasíðunni er klukkan 05:30 í fyrramálið og áætlum við að vera við bryggjuna á Seyðisfirði uppúr klukkan 09:30 og fara beint í ferjuna. Það má gera ráð fyrir ferðasögunni um næstu helgi.
Spilamennskan á 17. var ósköp hefðbundin. Alltaf gaman að spila lög sem enginn þekkir... Síðan er hafnar æfingar fyrir tónleika á Dalvík fimmtudaginn fyrir Fiskidaginn mikla. Þar verða flutt lög eftir Deep Purple, Pink Floyd, Uriah Heap, Procol Harum og fleiri rokkrisa.
Hljómsveitina skipa: Halli á gítar, Heimir Ingimars söngur og raddir, Eyþór Ingi söngur og raddir, Valli á trommur, Unnur Birna á hammond og fiðlu og undirritaður á bassa. Meira um það síðar.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home