6.11.2007

Ferðasumarið hafið

Late night snack
Late night snack,
originally uploaded by Stebbi Gunn.
Fórum í ansi hreint góða útilegu um helgina. Meiningin var að fara í Ásbyrgi, en við komumst seint af stað á föstudagskvöldinu og fórum í Vaglaskóg til að byrja með. Á laugardagsmorgunin var hins vegar svo gott veður að við ákváðum að vera um kyrrt og sáum ekki eftir þvi. fengum góða gesti í kaffi, kvöldmat og enn kom fólk og þáði kvöldkaffi. Á sunnudeginum fórum við á Grenivík til þess að baða okkur, en þar er sumarið ekki komið og sundlaugin lokuð, þannig að við fórum heim og lukum helgini í rólegheitum.
Sannarlega góð byrjun og græjurnar í góðu lagi. Næst verður vagninn opnaður í Færeyjum. Gott mál

0 Comments:

Post a Comment

<< Home