6.04.2007

Helgin

Trana ser fram
Trana ser fram,
originally uploaded by Stebbi Gunn.
Þá er júní byrjaður og ekki nema hálfur mánuður þangað til ég fer til Færeyja. Helgin var nokkuð notaleg og sumarið að ná tökum á fjölskyldunni. ég er búinn að slá fyrsta slátt, hreinsa beðin og koma fyrir járðaberjum á lóðinni. Síðar bætast við kryddjurtir og ég á eftir að færa til nokkra skrautrunna. Við fórum þó ekki í útilegu eins og til stóð, heldur fór ég á sunnudagin og hjálpaði Magnúsi frænda að negla nýtt þak á sumarhúsið sitt fram á Hrísum. Gaman að því og strákarnir skemmtu sér vel í bæjarlæknum.
Framundan er síðan vinna við að hanna lóðir og einhver spilamennska er að koma í ljós, verð að spila á torginu 17. júní og hugsanlega á Dalvík í kring um fiskidaginn mikla, en það á nú allt eftir að skýrast.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home