10.08.2007

Góð helgi endaði með flottu stunt atriði

Northenly sumer
Northenly sumer,
originally uploaded by Stebbi Gunn.
Já svo sannarlega. Við áttum meiriháttar helgi í Bárðardalnum og nutum frídaga minna, sem báru uppá helgi í fyrsta skipti í sjö vikur. Strákarnir léku við hvern sinn fingur og við Ragna hlóðum batteríin. Bökuðum okkur muffins og fórum í stjórnuskoðunarferð í heita pottinn á laugardagskvöldinu. Norðan hvellurinn í veðrinu gerði ekki vart við sig hjá okkur og því uðrum við eiginlega dálítið hissa þegar við keyrðum nánast ófært Dalsmynnið í gær til þess að kíkja á framkvæmdir hjá Svövu og Gesti í nýja bústaðnum við Grenivík. Þar vildi hins vegar ekki betur til en svo að ég hrundi niður af svefnloftinu og brákaði hryggjarlið ásamt því að togna í baki oh hálsi og merja mig vítt og breitt um kroppinn. Því ligg ég í bælinu og er að jafna mig. Fékk meira að segja að fara í sjúkrabíl inn á Akureyri og settur á bakbretti og allt. Svona mátulega skemmtilegt allt saman, svona ofan á úlnliðsbrotið í sumar.
Some guys have all the luck ...

0 Comments:

Post a Comment

<< Home